Augusta National Golf Club Masters
08. apríl 2007 klukkan 02:54
Í dag var ég áhorfandi a hinu fræga Masters móti sem spilað er á Augusta National. Dagurinn byrjaði á að keyra i tvo klukkutíma í áttina að bænum Augusta þar sem mótið er haldið. Þegar komið var inn í bæinn þá voru langar raðir og mikið af fólki að bjoða í miða og selja miða á mótið. Ég spurði reyndar ekki hvað þeir kostuðu en heyrði samt töluna 750 $ fyrir 2 miða en ekki veit ég hversu satt það er. En þegar komið var inn á svæðið þá eru fullt af fólki í röð og síðan þegar nánar var litið þá var þetta röð í gjafavörubúðina. Við fórum afram í átt að æfingagreeninu því það voru um 25 mín í fyrsta ráshóp. Charles Howell III var þar að hita upp. Síðan lá leið okkar á æfingasvæðið til að skoða hverjir voru mætti. Síðan gengum við 2 holur med Adam Scott og Charles Howell. Síðan skoðuðum við 16 greenid thar sem Tiger vippadi í. Síðan var farið á æfingasvaæðið aftur og hver var ad mætta á svæðið annar en Tiger gekk inn í klúbbhúsið. Um 20 mín seinna gekk Tiger inn á æfingasvæðið og var ég um 2 metra frá honum. Þetta var mjög einkennileg tilfinning því þetta var bara eins og einhver teiknimyndastjarna ádur en ég sá að hann er til í alvörunni. Síðan var farið út á völl að fylgjast með. Ég hafði ákveðið að sjá Tiger slá Driver á annari svo ég beið þartil búin á meðan þrír ráshópar fóru í gegn. Þegar hann sló þetta högg var algjör þögn. Þetta var ólýsanlegt. Um leið og hann byrjaði að ganga af stað gekk ég hratt á undan til að sjá annað höggið hans úr glompuni sem teig höggið hafði lent í. Hann sló 8 jarn ur glompuni. En þegar ég sný mér við og tek eitt skref áfram þá labba ég næstum inn í konuna hans Tiger. En hún var þarna með föður sínum. Einnig mátti sjá móðir Tigers í áhorfendahópnum. Þegar þetta var afstaðið ákváðum við að fjárfesta í Masters stólum í gjafavörubúðinni. Síðan þegar við erum að koma úr búðinni og komum að 18 flötinni þá eru 2 aup stæði fyrir stólana okkar svo við förum og setjum þá niður og horfum á nokkra ráshópa klára á 18. síðan skiljum við stólanna eftir og göngum í att að Amen horninu en þessi sjón er ólýsandi. Eftir að hafa dáðst af þessari sjón göngum við aftur í átt aðáttjanduflötinni með stuttu stopi á 18 teig. En þetta teig högg er ekkert smá ógnvekjandi, við sáum J.J Henry og Davis Love slá af teignum og vá þessir menn geta sleggið golfbolta. En það sem eftir er þá fórum við í stóllana okkar á 18 til að fylgjast með nokkrum hollum klára á 18. Þegar Tiger kláraði á 18 fórum við heim því við áttum 2 kl keyrslu á hótelið. En á morgun munum við leggja af stad snemma til að vera mætt á staðinn snemma til að skella stólunum okkar niður við 18 flötina til að vera viðstödd þegar Master sigurvegarinn verður krýndur um kl 7 á morgun. Við ætlum að reyna að vera sjáanleg í myndavélunum en ekki veitt ég hvernig það mun ganga en við munum reyna að vekja athygli á okkur. Ég mun vera með ljósbrúna Titleist derhúfu og Hanna mun vera í appelsínugulum Zo-on jakka. Ef ske kynni að við munum vera í mynd þegar þeir sýna frá þegar þeir klára á morgun. En ég er farinn að sofa svo ég geti verið hress við keyrsluna.
Bless
Simmi
Bless
Simmi
Sigmundur Einar Másson
